Ég er nú mikill bílaáhugamáður sjálfur en ég hef bara eiginlega ekki tíma í að vera að taka þátt í umræðunum hérna. En hinsvegar var ég að velta því fyrir mér hvar ég gæti hugsanlega keypt filmur í afturrúðurnar hjá mér og sett þær í sjálfur. Ég tjekkaði á þessu í Bílanaust og þar var þetta víst búið, þó ég eigi nú bátt með að trúa því. 12 volt setja þetta í sjálfir. Ég er ætla sko að setja þetta í MMC L200 hvernig sem það ku hljóma :). Ég ákvað bara að koma hingað og spyrjast fyrir í staðin fyrir að fara í einhverja verslun og kaupa þetta á einhverju okurverðri ef ég get hugsanlega fengið þetta einhversstaðar ódýrara. En ég vona bara að þið vitið um eitthvað.

Kveðja Otti.
“He's not the Messiah! He's a very naughty boy” - Terry Jones, Life Of Brian