Ég var ekki búinn að kíkja á Huga í nokkra daga annars hefði ég svarað þér fyrr. Sennilega ertu nú búinn að redda þessu, en ef ekki þá eru hérna tveir linkar sem ættu að geta hjálpað þér.
http://www.geocities.com/saabzen/dashReplacement.htmhttp://www.saabnet.com/tsn/bb/900/index.html?bID=123807Annars er eiginlega alltaf hægt að finna einhverjar upplýsingar á Saabnet. Þessar korktöflur (Bulletin Board) eru algjör gullnáma fyrir Saab eigendur.
Hvernig 900 áttu annars? Árgerð og svona.
Minn er '83 900 gle ekkert túrbo og sjálfskiptur þannig að hann er nú engin eldflaug, en ég er búinn að breyta honum smá þannig að hann er nú orðinn soldið sprækari en þegar ég fékk hann.
Ef þú vilt eitthvað spjalla um Saab eða eitthvað þá geturðu sent mér email á xxxxxx@mail.saabnet.com en settu thorir í staðin fyrir xxxxxx (svo að maður lostni við spam).