Til sölu ef ásættanlegt tilboð fæst.

BMW 750iL 1992 fjólublár (virðist vera svartur á næturna en dökkblár á daginn) með öllu þessu helsta s.s. topplúgu, rafmagn í sætum og rúðum, hiti í sætum, tvöfalt gler, buffaloleður á öllu + buffaloleðurstólar frammí framleiddir af Recaro.

Bíllinn er í góðu standi, nýjir bremsudiskar og klossar að framan og aftan, skiptingin er eins og ný (allt nýtt innan í henni), búið að skipta um nánast allar pakkningar og pakkdósir í vélinni. Bíllinn er á ekkert sérstökum BMW 15" felgum en góðum Michelin heilsársdekkjum.

Það sem þarf að gera fyrir bílinn (sem ég gæti séð um ef óskað) er að skipta um dempara að framan og gorma að aftan. Bíllinn er með ´03 skoðun og fékk athugasemd fyrir númersljós.

Athuga flest öll skipti en hafði hugsað mér að fá ca.1300 þús fyrir bílinn (samningsatriði)