Eða Solo2 keppni verður haldin í dag laugardag á hafnarbakkanum Reykjavík. Tómstundahúsið heldur keppnina. Keppnisgjald er 1500 kall, eða 1000 fyrir eldri borgara og lögreglumenn :)

Auto-kross fer þannig fram að braut er mörkuð á malbikuðu flæmi (t.d. bílastæðum) svo aka keppendur brautina einn í einu á tíma. Refsing fyrir að slá keylur um koll eða úr kassa sem markaður er umhverfis keiluna.

Meiri uppl á http://www.na-motorsports.com/Autocross/

Ökuníðingar fjölmennið. Ég geri ráð fyrir að krafist sé löglegs ökutækis (skoðað og skráð) og hjálms, en annars þarf bara að mæta á súkkunni eða volvonum og skemmta sér og öðrum við léttan og löglegan glannaskap.