Ég get svo svarið það, ég sá bregða fyrir COBRU hérna á götum borgarinnar í dag ! Dökklituð með tveim hvítum röndum þvert yfir og sílsapústi ! Sá bílinn bara þegar ég var á ferð og COBRAN kom á móti, en ég þekki COBRU þegar ég sé hana ! Veit einhver eitthvað um þennan bíl ? Er þetta kitt bíll ? Hvernig vél er í honum ?