Það er hætt að koma mér á óvart hvað fólk getur verið skemmt á heila.

Í gær fór konan á bílnum okkar í ræktina, og á meðan hún var þar inni var bílinn okkar lyklaður. Afturbrettið og afturhurðin “fuckt up” pardon my french.

Hvað fer eiginlega í gegnum hugan á fólki áður en það tekur upp á þessu helvíti. Er þetta skemmdarárátta, er þetta öfund út í þá sem geta keypt sér fallega bíla, eða er fólk bara svo tognað á heila að það gerir sér ekki grein fyrir því hvað það er að valda öðrum miklu tjóni.

Persónulega gæti ég aldrei skemmt fallega hluti, sérstaklega ekki ef þeir eru í eigu annarra en mín. Ég hef alla tíð dáðst af fallegum og vel til höfðum bílum. Kanski er ég bara svona vel upp alin, reyndar veit ég að foreldrar mínir stóðu sig vel. Kenndu mér ábyrgð og virðingu fyrir öðrum og verkum þeirra.

En hvað er þá málið. Hvað gerist hjá svona fólki. Hvað huxar þú þegar þú labbar upp að bíl einhvers annars, tekup upp lykilinn og setur hann upp að fallega bónuðu svörtu lakkinu. Ég bara get ómögulega ímyndað mér það.. bara ekki séns að ég geti sett mig í þessar aðstæður. En ég get alveg ímyndað mér hvernig ég myndi bregðast við ef ég kæmi að einhverju fíflinu með lykilinn á lakkinu.

Það eina sem ég get í raun gert í málinu er að fá nett brjálæðiskast, síðan fylgja nokkur tár í augun, og síðan “bitch”. Bitch yfir þessu, Bitch í ykkur yfir þessu, Bitch yfir því hvað fólk er heimskt og svo Bitch yfir reikningnum, sem er væntanlega einhverstaðar nálægt 50þúsund. 50k sem maður þarf að borga fyrir stundarbrjálæði, eilífðarheimsku, eða lélegt uppeldi á einhverjum fávíta í Hafnarfirði.

Jú það er eitt sem ég get gert, ég get beðið Guð voran um láta einhvern öfurölvi ökumann (ógæfumann) keyra yfir þetta lið áður en það gerir svona lagað aftur.

Með von um að þið hin sleppið við þetta alla ævi.

FArt