Eins og kanski einhverjir bílaáhugamenn vissu þá er meiningin að halda smá bíladjamm í kvöld hjá Benna, Vagnhöfða 23.
Um að gera að hefja rúntinn þar, þar ætla að koma saman fólk til þess að skoða bíla og sýna sína bíla.
Fyrir græjuáhugamenn verður hægt að mæla hávaðamengunina úr hljómkerfum bílanna ykkar, hver er með bestu græjurnar? Hvað eru græjurnar ykkar mörg db?
Skoða, sýna og hafa gaman í kvöld kl. 20.00 og eitthvað fram eftir.
Plötusnúður verður á staðnum, og verða græjurnar tengdar við bíl.

Bara svona ef einhver er að spá þá kostar þetta ekki neitt, ekki heldur mælingarnar.

Svo að sjálfsögðu neitum vér eigi áfengi undir stýri!!!

Vonandi sjá sem flestir fram á að mæta í kvöld!

Fyrir hönd Bílabúðar Benna,
Garri