jæja ég var að tengja cd í bílinn minn og var búinn að tengja góða jörð og tengdi síða ignition og + straum bara sona lauslega og það virkaði, byrjaði að hlusta á tónlist og sona…ok.
Svo tók ég allt úr sambandi og tengdi betur, einangraði og gekk frá vel og þá virkaði græjan ekki, bara alls ekki.
Þannig að ég fór yfir allt, yfir öll öryggi og öryggið á spilaranum og þefaði af honum í leit að bruna smelli en allt var í góðu lagi.
Hvað gæti verið að??
ég er að springa úr pirringi!
Plís, lát heyra og komiði með hluti sem gætu virkað.