Ökuþór á mótorhjóli í spyrnukeppni, sem haldin var á Akureyri í dag, er talinn hafa slasast alvarlega fyrir um klukkustund. Var keppninni aflýst samstundis en rúmum tveimur stundum áður varð annað slys í keppninni.
Að sögn lögreglu er aðdragandi slyssins ekki ljós en tilkynnt var um óhappið til hennar klukkan 18:50. Var maðurinn fluttur alvarlega slasaður á Fjórðungssjúkrahúsið á Akureyri (FSA) til aðhlynningar.

Klukkan 16:16 varð einnig slys í keppninni er keppandi féll af mótorhjóli. Var hann sömuleiðis fluttur undir læknishendur á FSA en reyndist aðeins hafa meiðst minniháttar.

Um var að ræða árlega spyrnukeppni á bæði bílum og mótorhjólum en hún fór fram á Tryggvabraut á Akureyri