Tími ekki að senda Kylie út og því fara þessar myndir inná korkinn.

Þessi Subaru eigandi hefur á einhvern hátt náð að verða sér úti um einn af spoilerunum sem notaðir voru á WRC Imprezurnar í fyrra. Alla vegana hef ég ekki enn fundið neinn sem framleiðir replicur af nýja WRC spoilernum enda heldur eigandi bílsins því fram að þetta sé ekta.

En ekki nóg með það heldur brá okkar maður undir sig betri fætinum og fór með bílinn til Spánar í síðasta mánuði til að fylgjast með WRC rallinu sem fór þar fram. Þar tókst honum að fá þá félaga Tommi Makinen og Petter Solberg til að árita spoilerinn eins og sést á meðfylgjandi myndum. Talandi um hardcore Subaruadáendur…….;)

Tryggingafélag eigandans ku ekki vera hrifið af þessu uppátæki enda ekkert venjulegt mission að útvega annan eins spoiler ef þessi verður fyrir einhverju hnjaski.

<IMG SRC="http://upload.turbosport.co.uk/gallery3/2002410163819761348.jpg“>
<IMG SRC=”http://upload.turbosport.co.uk/gallery3/2002410163819553855.jpg"