Ég er að losa mig við gráan Daihatsu Charade '88 5 dyra, það lekur olía á kertin og þau eru ónýtt ásamt kertasnúrunum (heitir örugglega eitthvað annað), stundum er ekki hægt að opna hurðina bílstjóramegin (ætti að vera hægt að laga auðveldlega), hann var ennþá gangfær síðast þegar var athugað en gekk illa vegna kertanna (hann er að vísu rafmagnslaus núna) en ég verð að játa að það gæti verið fleira að honum, ég bara þekki ekki nægilega inn á bíla til að vita það. Ég er komin á nýjan bíl og vantar að losna við þennan sem fyrst, einhver tilboð? Gæti hentað sérstaklega vel fyrir einhvern sem vantar Daihatsu varahluti.