Góðan daginn, var að fjárfesta í bíl sem er ágætlega gamall. Á þeim gömlu tímum tíðkuðust ekki geisladiskar svo það er kasettutæki í staðinn.

Ég hafði hugsað mér hvort að það sé ekki bara hægt að kaupa einhversstaðar eitthvað notað bílaútvarp sem virkar alveg, tími varla að splæsa í nýtt útvarp í bíl sem kostaði mig klink.

Veit einhver um einhverja síðu eða er fólk kannski ekkert í því að selja útvörp eitt og sér?