Ég er með til sölu Toyota Corolla h/b, 2002 árgerð, ekin 110.000 km. Hún er dökkblá með 1,4 lítra vél og eyðir þar af leiðandi sáralitlu (ca. 7 lítrum/100 km í innanbæjarakstri, allt niður í 5,x í langkeyrslu). Bílinn er með skoðun fram í júlí 2010. Bíllinn er á 2 ára gömlum heilsársdekkjum. Hann er með tímakeðju en ekki tímareim svo ekki þarf að hafa áhyggjur af því að skipta um hana.

Bíllinn er með 4 strokka, 1398 cc. vél með innspýtingu sem skilar 97 hestöflum. Bíllinn vegur 1.170 kg. Hann er 5 gíra beinskiptur og framhjóladrifinn. 5 manna, 5 dyra með pluss áklæði. Bíllinn er með fjarstýrðar samlæsingar, rafdrifnar rúður að framan, loftpúðum, geislaspilara og útvarpi. Hann er með ABS hemlalæsivörn og höfuðpúðum á öllum sætum.

Auk þess er hann með mjög gott farangursrými sem hægt er að stækka enn meira með því að leggja 1, 2 eða öll 3 aftursætin niður.

Bíllinn er reyklaus og hefur einungis haft 2 eigendur í gegnum tíðina. Aldrei lent í neinu tjóni. Topp bíll í alla staði sem ég mun sjá mikið eftir.

Umboðið verðmetur bílinn á 1100 þús.

Upplýsingar í síma 693-4372 eða á snosig@gmail.com.