Var að skoða eilítið um þetta nýja tryllitæki frá Audi og svo virðist sem M5 megi fara að vara sig. Everso short specs : 4.2 twinturbo V8 444 hp 4.9s 0-100 km/h, 18s 0-200 km/h og “lauslega” takmarkaður hámarkshraði við 250 km/h. Ekki slæm græja það!
Vissuleg amega BMW menn vara sig á öllum svona tilfæringum. En þeir standa nú sennilega uppi sem sigurvegarar þrátt fyrir þessar tilraunir. Þetta er t.d. svipuð hröðun og í M5 og það er ágætis svigrúm eftir til að tjúna þann bíl frekar. Það er t.d. talið líklegt að vélin fari í 440 hestöfl við næstu yfirhalningu og ekki eru þeir að nota túrbínu….
Audi-inn er asskoti flottur samt! Það eina kannski sem mér finnst vanta með bimmann, vitanlega er hann flottur, bara ekki geðveikur!
Ég er nú sammála um að BMW-inn sé sigurvegarinn í þessum flokk, það sem Audi-inn hefur hins vegar fram yfir Bimman að mínu mati eru túrbínurnar. Í höndum réttra manna er hægt að setja hann auðveldlega yfir 600 hö og það með góðu “reliability” en það er náttúrulega bara fyrir þá sem er alveg nut! Ég hugsa að ég myndi nú samt ekki fara út í að tjúna svona dýran bíl…
Þið vitið það sjálfsagt jafnvel og ég að “hard facts data” er ekki endilega málið. Það er fullt af bílum að ná ógnarhröðun búnir ógnarvélum en það segir ekki nema hálfa söguna. Ég efast ekki um að Audi RS6 sé skemmtileg græja en hingað til hafa þessir ofurbílar Audi ekki átt séns í Bimmann. Þykja frekar dauðir í gegnum stýrið. Gufi
E.S Hafið þið séð nýja Alfa tryllitækið án nafns með 4.0 400 hö vélinni úr Maserati GT bílnum og vænghurð, a la Lamborghini Murchielago. (one good looking piece of thing).
nýji alfa bíllinn er geððððveikur ég þurfti að skipta um brækur tvisvar sama dag eftir að hafa rekið augun í hann bæði fyrir og eftir hádegi<br><br>-k-
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana.
Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..