Sælir

Mig langar að forvitnast svolítið um þessa bíla. Ég man eftir tveimur slíkum, annar var rauður og stóð einhvern tíma í vor eða sumar á Litlu bílasölunni. Hinn var grænn og var til sölu á bílakassanum, einnig í sumar. Nú er ég að leita mér að bíl og datt þessir í hug, enda með eindæmum fallegir bílar. Hvorugur þeirra er samt enn skráður þar sem ég sá þá í sumar. Sá rauði er farinn af skrá hjá Litlu og sá græni er ekki á bílakassanum. Ef einhver ykkar veit eitthvað um þessa bíla sem ég veit ekki (ég veit hvað þeir heita og hvernig þeir eru á litinn, that's it!) s.s.
Eru þeir þeir einu sinnar tegundar hér á landi?
Eru þeir fluttir inn af umboði eða öðrum aðila og ef svo er, eru þeir tjónahrúgur?
Hvar eru þeir niður komnir og eru þeir til sölu þar?
Og þar fram eftir götunum…

Með fyrirfram þökk,<br><br><a href="http://kasmir.hugi.is/Hvati“ target=”_blank">Hvati</a