Mér datt svona í hug að senda þetta svo við getum staðið saman gegn stóra bróður.

Fyrst og fremst þarf að koma því á framfæri að mér finnst hræsni að vera sekta fólk fyrir að aka á hraða sem er látinn viðgangast allan liðlangan daginn vegna þess að gatnakerfið er að springa.

Maður bregst svo við með því að reyna að verja sig.

Því leikur mér forvitni á að vita hvort þið vitið með vissu hvar hraðavélar eru staðsettar, ég hef allavega ekki hugmynd um það og vil gjarnan vita það.