Bara smá komment hérna í umferðaróhappa spurningunni.

Ég svaraði því til að ég hefði lent í 1-3 umferðaóhöppum sem er alveg rétt. Mér fannst hinsvegar vanta möguleika á að svara hvort maður hafi verið valdur að þeim eða ekki. Ég er nefnilega viss um að þeir sem hafa ekki verið valdir að óhöppum svara sem þeir hafi ekki “lent” í umferðaróhappi sem er náttúrulega rangt. Ég hef lent í tveimur árekstrum, en í bæði skiptin var ég á bíl sem var kyrrstæður á ljósum, þannig að það var ekki mér að kenna;)