Ég hef verið með félögum mínum að spila ýmsi leiki í PS2 núna upp á síðkastið og þar stendur GTA2 uppúr. Við erum búnir með GT3 og hina ýmsu rally leiki, en þessi er hrein snilld. Nöfnin á bílunum út í hött, þótt það sjáist greinilega hvaða tegund/gerð þetta er. Ég er núna að forvitnast um, hvaða bílaleiki spilið þið helst, ef að þið eruð í þeim á annað borð? Og mér er nokkuð sama hvort það sé í PC, PSX eða PS2 (eða hverju sem er :) bara að þið tjáið ykkur um það :)

Sjálfur er ég mest í:

GTA2 (PS2)
GT3 (PS2)
Collin McRae Rally 2.0 (PC)
V-Rally 2 Expert Edition (PC)

Shoot! :)

Kv.
mystic
nossinyer // caid