Hæ!

Ég á Sunny SR og er að velta fyrir mér hvort það sé einhver hérna inni sem getur bent mér á góða(r) síðu(r) fyrir mods (bæði innan og utan) fyrir þessa bíla?

Ég er kominn með Green síu í hann frá Á.G. og plana að setja hann á álfelgur og setja í hann kubb og laga pústið í sumar, en mig langar að reyna að gera meira, sérstaklega bremsurnar og exteriorið. Er hægt að setja ABS kerfi úr GTI bíl í hann, eða er það svo dýrt að það borgi sig ekki? Vitið þið um einhver kit á þessa bíla?

Kv.
Xi