Er með gullfallegan gulan Hjondæ Accent ‘98 til sölu.

Skoðaður ’08, lítið notuð dekk undir honum, vindskeið og topplúga, geislaspilari (fínt merki, man samt ekki hvaða, gæti verið Sony), 1500 cc, 88 hestöfl, ný bremsluleiðsla, rúmgott skott og mjög ljúfur og góður bíll.

Það vantar samt plastið yfir eitt stefnuljósið, ljósið sjálft svínvirkar samt, og hann er ekkert rosalega beyglaður. Eyðir ekki miklu bensíni, en brennir smurolíunni soldið.

Tilboð í hann óskast sem fyrst, í skilaboðum takk fyrir. Selst ódýrt.