Ég rakst á núna fyrir algera lukku á síðu sem sérhæfir sig í ýmiskonar lausnum við þessum pirrandi myndavélum. Og í framhaldi af því að ég las hérna á huganum að fólk væri að pæla í hvernig mætti leysa þetta þá er þessi heimasíða alger snilld. http://www.phantomplate.com/
Þar eru nokkrar lausnir á þessu vandamáli til dæmis sprey sem maður úðar bara ákveðnu glæruefni á númeraplöturnar og vandamálið er úr sögunni, á myndinni verður bara hvítt þar sem númerið er á myndinni þeirra. Svo er líka önnur lausn sem er sú að setja 3M plast sérútbúið yfir númerplöturnar sem gerir það að verkum að númerið skramblast ef litið er á það ofan frá (eins og myndavélarnar eru alltaf). Lítur allavegana helvíti vel út. E-ð sem vert er að skoða fyrir alla sem eiga við hraðavandamál að stríða ;)
En eins og ég sagði http://www.phantomplate.com/ alger snilld