Sælir,

Eftir mikið heilabort og pælingar ákvað ég að halda í mína heitt elskuðu GT presu og ætla að ditta bara meira uppá hana og gera hana enn huggulegri.

En staðan er þannig að mig vantar að skipta um bæði Blowoff ventil og Turbotimer, ég var að velta fyrir mér hvort að venjulegt toyota verkstæðigeti gert þetta?

Ef ég á að segja sannleikan þá hef ég ekki mikið álit á þessu verkstæði, þeir eru að rukka fyrir tíma sem þeir eru að eyða í að læra á sinn eigintækni búnað og lenti í töluverðu veseni síðast þegar þeir voru að reyna gera sitt starf, sem endaði með að ég tók bílinn af þeim og neitaði að borga, þar sem þeir voru með hann í 2 daga gerðu ekki neitt og vildu svo fá borgað fyrir sinn tíma.

Svo pælingin er sá, er þetta nógu einfalt til að þeir geti gert þetta ánþess að ég fái himinn háan reikning frá þeim því þeir voru heillengi að læra gera þetta?

Þakka fyrir mig.
extrn!