Sælir
Nú þarf ég hjálp frá ykkur.
Þannig er mál með vexti að ég bý í Grindavík þar sem að búið er að snjóa mjög mikið síðustu daga.
Og núna ætlaði ég að reyna að fara að færa bílinn
minn en þá fer hann ekki í gang.
Þannig að ég kíki undir húddið og þar er snjór út
um allt.
Þannig að ég spyr hvað er hægt að gera?
Er best að bíða bara og láta snjóin þiðna og sjá svo til eða hvað?