Jæja, mér tókst að týna bíllyklunum mínum. Og engir auka til. Og það eina sem hægt er að gera samkvæmt umboðinu(Toyota) er að setja nýja tölvu í og læti..semsagt einhver 130 þúsund kall, og ég er ekki sátt við það..

En mér var bent á að tékka hvort ég gæti fundið eitthvað hræ af sömu tegund og bílinn minn(Toyota Corolla '99 árgerð) og taka tölvuna og lyklana úr honum og setja í minn bíl.
Myndi það virka?
Og vera ódýrara?


~ Orkamjás