Ég er með bilavefur.com og ég hef óþrjótandi áhuga á Corvettum. Ég var að pæla í því hvort ég ætti að setja upp svæði á bílavefnum mínum sem snérist eingöngu um Corvettur, þá geta þeir sem eiga svoleiðis skráð sig og sett myndir af bílnum sínum og skipst á varahlutum og allskonar svoleiðis, svo hinir sem ekki eiga Corvettu geta skoðað og komist í samband við þá sem eiga og spjallað og svona.

Haldiði að það væri einhver almennur áhugi á þessu eða eru kannski alltof fáir sem eiga Corvettu til að þetta gangi?

-Gústi