Allt í lagi….. Málin standa þannig. Ég var staddur í kringlunni föstudaginn 30. nóvember. Klukkan var milli 18:20-18:27.

Það sem gerðist var að það var keyrt utan í bílinn minn og keyrt í burtu þetta er náttúrulega bara mest pirrandi. En það er kannski að einhver hér hafi séð þetta ég á rauðan Ford Ka, ég veit að bíllinn sem var lagður hliðin á mér var jeppi ég helt svona 87-90 módel af MMC Pejero ef einhver hefur orðið var við þetta þá endilega láta mig vita. Ég veit að ég er að gera mér miklar vonir en samt mig langaði að prófa. Ég sendi fyrst grein á forsíðuna en eins og flestar greinar sem fara að forsíðuna hverfa jafnfljótt og þær koma bara pirrandi ég skírði hana “Óþolandi….”.

En þetta er eitt mest pirrandi sem ég veir að keyra í burtu, það er ekkert nema hænugangur. Ég veit fyrir víst að ég myndi ekki keyra í burtu ég get tekið afleiðingunum. Því það sem þú villt að fólk geri við það gerir þú við það. Og ég vill að fólk taki afleiðingunum þegar það lendir í svona. En það eru ekki allir jafn heiðarlegir því miður. En ég yrði mjög þakklátur ef einhver gæti gefið mér einhverjar upplýsingar um þetta. Ég yrði endalaust þakklátur, ég veit að ég er að gera mér miklar vonir en hver veit kannski varð einhver hérna vitni af þessu. :)

Takk fyrir
Ray Franco