hæ,
peugeot 309 '92 druslan mín missti pústið í skafl í morgun og er á verkstæði. ég er orðinn ansi þreyttur á þessum tíðu verkstæðisferðum á tuðrunni þannig að ég er að spá í að kaupa mér bíl.

af gefinni reynslu er bíll sem bilar lítið efst á óskalistanum.

hvað get ég fengið fyrir milljón? eru einhverjir sem bila sjaldnar en aðrir? toyotur í kringum mig hafa vanalega enst vel, er eitthvað til í því?

öll ráð vel þegin