Sælir drengir.
Ég á Dodge bíl sem mig vantar smá upplýsingar með.
Ræsir segist vera með umboð fyrir Dodge.
Ég hringi í Ræsi og spyr þeirra spurninga sem mig vantar varðandi bílinn minn.
Starfsmenn þar segja að aðeins einn ákveðin starfsmaður geti svarað spurningu minni varðandi bílinn minn.
Þegar ég hringi er hann alltaf upptekinn eða í símanum.
Ég hef í 5 daga látið skilja eftir skilaboð fyrir þennan mann til að hringja í mig, aldrei hringir hann, og í þesa daga hef ég hringt með 3 klst fresti.

Hvað á ég að gera ?