Ég ætlaði að tékka hvort að einhver hérna hafi einhverja reynslu af alfa romeo 156. Ég er nefnilega að spá í einum með 2,0 vélinni búinn að prófa hann og líkar helvíti vel. Ágætis kraftur en mér finnst þeir bara fuckin' flottir og ég tala ekki um þegar það er komið kitt, 17" felgur, kastarar, spoiler og allt tilheyrandi og síðan fyrir utan það sem má gera við vélina. Maður er bara alltaf að heyra að þetta sé alltaf BILANDI og ég veit ekki hvað skal gera, látið heyra í ykkur.