Hef verið að leita að spoileri á Ravinn minn síðan ég fékk hann, grunar að það plús ásetning kosti morðfjár hjá Toyota. Sá nokkur á Ebay sem mér leist vel á, eru eins og orginal spoilerin því ég vil ekki einhver carbon eða hvað sem það sorp er. Málið er bara hvort að ég gæti fundið einhver á partasölum eða einhverstaðar og hvað sé mikið mál að setja þetta á? Og hvað kostar ca að sprauta þetta samlitt bílnum.