Ok ég er í smá vandamáli með Þennan bíl sem ég var að fá mér. Ég týndi aðal lyklinum og það er enginn annar lykil til og Brimborg heimta eithvað 200+k fyrir nýja tölvu og lykil en ráðlögðu mér að leita bílaparta sölur, en þar er ekkert skipulag á þessum lyklum og tölvum sem þeir eru með svo ég nenni ekki að standa í því.

Svo er ég búinn að leita allstaðar á netinu hvort það sé á einhvern hátt að tengja framhjá þessu IMMOBILIZER thing og startað þannig, mér var sagt að ég þurfi bara að tengja beint rafmagn á bensín dæluna. En ég hef ekki hugmynd um hvar hún er í þessum bíl :S

Og hvort ég er að spyrja www.google.com réttu spurningarnar :/ Svo þetta er mitt síðasta að leita ráða hérna…

Vonandi er einhver Japanskur bílanörd sem getur hjálpað mér :D
Hvað gerir maður hér?