Ég var að lesa Fréttablaðið í gær (21. feb) og sá þar grein um kallinn í Kattarbúðinni… Þar kom fram að hann er að fara að flytja inn Buggy bíla sem koma götuskráðir… Í greininni er vísað á síðuna hjá honum og ég var snöggur að fara á hana…

En ég fann ekki það sem ég var að leita að… Svo ég spyr ykkur kæru hugarar: Veit einhver hvað ég er að tala um og getur einhver sent mér link á síðu þar sem finna má upplýsingar og jafnvel myndir af þessum buggy bílum sem kallinn er að fara að flytja inn?
Það sem ég segi er mín skoðun. Þó skaltu ekki dæma mig of hart, og alls ekki bögga mig, ég nenni ekki svoleiðis. Fyrirfram þakkir.