Ég veit ekki hvað þetta hefur farið framhjá mörgum en Louis Vuitton eru búnir að kaupa Aston Martin. Hver er ykkar skoðun á því máli? Veit ekki alveg hvað fyrirtæki sem hefur aldrei komið nálægt bílaframleiðslu ætlar að fara að gera.

Eina sem mér dettur í hug að þetta fyrirtæki gæti gert væri að skella Louis Vuitton leðri í innréttinguna. En vonandi dæla þeir peningum í þá. Væri ekki óskemmtilegt að fá einn supercar frá þeim.