Ég er með Hyundai Accent '98 til sölu. Ég er búinn að eiga hann í 3 mánuði eða eitthvað álíka.. keypti hann af afa mínum sem hafði átt hann næstum alla bílsins tíð! Bíllinn er nokkuð vel farinn, og hann er á næstum nýjum nagladekkjum og fylgja mjög vel farin sumardekk. Bíllinn er keyrður 45.5XX Kílómetra! Já 45þúsund kílómetra, sem er ekki neitt!! Vélin er 1300 og hann er 70hö minnir mig. Ekki mikið en hann hefur reynst mjög vel og ekkert bilað. Fór á honum til akureyrar um daginn og það var allveg frábært. Bíllinn er vínrauður en ég er ekki með neina mynd af honum. Þetta er bíll sem á allveg nóg eftir!!

Sendið mér bara einkaskilaboð.
260 ÞÚSUND