Svona aðeins til að bæta á umræðuna um nýja CTR þá hef ég þær fréttir að verð á þessum grip ER 2.800.000 kr! Hann verður ekki kominn í tæka tíð fyrir sýninguna í Smáralindinni en þeir koma upp úr mánaðarmótum. Þrír bílar verða fyrst teknir inn, tveir silfurlitaðir og einn svartur og er einn þessara bíla seldur! Þessir bílar munu koma í meira magni heldur en Integra Type-R kom og einnig verður mun auðveldara að panta þá, en málið með Integruna var að fá eintök voru framleidd og því voru evrópskum umboðum bara úthlutað ákveðum fjölda en alls seldi Honda umboðið 5 slíka frá 98-99. Nú er vill ég sjá Toyota fara að flytja inn Celicu 180!! :)