ég er orðinn alveg brjálaður yfir sumu fólki í umferðinni. einsog fyrir 2 dögum var ég að keyra á Barónstígnum þegar mjög aldraður maður á Daihatsu jeppa keyrði út úr stæði við kantinn og bara útá götuna þar sem var smá umferð, ég var svo vitlaus, ég hefði bara átt að þruma á hann en í staðinn keyrði ég upp á kant og skemmdi stuðarann og braut annað þokuljósið, og viti menn, sá gamli keyrði bara í burtu, annað hvort sá hann þetta ekki eða vildi ekkert vita af þessu, gleymdi að ná númerinu í öllum látunum.
og áðan gerði ég þau mistök að stoppa á stöðvunarskyldu niðri í bæ. mjakaði mér aðeins áfram og beið eftir færi, frekar mikil umferð, nema hvað að fyrir aftan var ung kona á svörtum Range Rover sem flautaði all hressilega á mig, ekki eitt bíb heldur langt biiiiiiiib og nokkur þannig, leit í spegilinn oh konan steytti hnefann, ok svo fór ég yfir og truntan treður sér hliðina á mér og gefur myndarlegt fokk merki, ég brjálaðist, elti hana uppí árbæ og þar stoppaði hún og hreytti út úr sér “þú ættir ekki að vera með bílpróf”
hvað er að svona pakki?
OH.