Sælt veri fólkið. Ég var að keyra vin minn í kvöld sem lennti í því óláni að hella slatta af bjór niður í sætið hjá mér. Þetta eru ekki leðursæti bara venjuleg sæti í Toyota Avensis bíl.
Því bið ég ykkur um ráð hvernig sé best að losna við bjórinn úr sætinu og einnig að forða því að það komi blettur. Ég náði mér í handklæði og bleytti og nuddaði sætið fram og tilbaka en endilega ef þið hafið einhver ráð segið mér þau þá.