Vínrauður Renault Clio árgerð 1996 til sölu. Bíllinn er mjög vel farinn, algjörlega reyklaus og keyrður aðeins 72.000 kílómetra. Mjög góður fyrir skólafólk :)
Fyrri hluta ársins 2005 hrundi tímareimin í honum og þá var hann settur í alhliða tékk, meðal annars ný tímareim, ný viftureim, ný vatnsdæla, nýir ventlar, ný kerti og nýir demparar að framan. Einnig er pústkerfið í honum mjög nýlegt.
Hann er með 1200 vél og eyðir þar með mjög litlu, er mjög þægilegur í akstri innanbæjar sem utanbæjar. Með honum fylgja 3 nelgd vetrardekk og 4 glænýir hjólkoppar.
Hann fór í skoðun síðastliðinn mánudag og flaug í gegn athugasemdalaust. Ásett verð er 195.000 en ég mun skoða öll tilboð.
Hringið í síma 8235803 eftir klukkan 4 eða sendið e-mail á ino2@hi.is fyrir frekar upplýsingar :)