Jæja, nú eru margir gárungar búnir að flytja inn bíla, og ekki bíla af verri endanum. Mikið er orðið af ofursportbílum, innan gæsalappa, hér á landi.

Mér langaði til að forvitnast um hvort þið hafið orðið var við einhverja ofurbíla nú í sumar. Sjálfur er ég búinn að sjá tvo Ferrari-a (reyndar báðir sem hafa verið hér í nokkurn tíma), einhvern Bentley (man ekki hvaða týpu, rétt greip í að sjá rassgatið á honum:), Maserati 3200GT, nokkra BMW M5, Mercedes Benz CLS500, BMW 645, BMW M6 og fleiri svona “fjölskyldubíla”.

Hafið þið orðið vör við eitthvað skemmtilegt og óvenjulegt hér í sumar? Langaði til að koma upp smá umræðu um þetta.