Jæja lenti í smá rifrildi við pabba minn. Stressið alveg að gera útaf við hann held ég. En þá er ég að fá bílpróf bráðum og við erum búnir að vera að leita af notuðum bílum á netinu. En það sem pabbi kemur með fyrir mig eru allt bestu bílar, en ekki í flotta kantinum. Núna langar mig bara að face-a hann smá og koma með einn flottann og í þokkabóti góðan bíl.

Hann þarf að vera keyrður lítið eða í kringum 70k - 100k. Ekki tjónabíll og kosta frá 500 þús til 750þús.

I need your help. Ef þið vitið um einhvern svoleiðis sem þið hafið rekist á netinu eða eigið sjálfir kannski og viljið losna við ;)