Tegund og módel:
2004 árgerð af Peugeot 206 RC - Sérpöntuð týpa. RC sem stendur (eftir því sem ég best veit) fyrir Rally/Race Car. Þetta er 3gja dyra bíll og er hann svartur að lit. Hann er ekinn 12.000 km

Orkugjafi:
2.0 lítra háþrýst bensínvél sem skilar 177 hestöflum og 202 nm.

Eyðsla L/100km:
Um 10-12 innanbæjar (fer eftir hversu vel þú keyrir hann Wink
Um 8-9 í blönduðum akstri
Um 6-8 í langkeyrslu

Skipting:
Beinskiptur, 5 gíra kassi. Lágt gíraður = fljótur upp.

Ekinn:
Um 12 þús kílómetra. S.s. langt undir meðalkeyrslu (hún væri c.a. 30 þús.)

Drif:
Framhjóladrifinn

Skipti:
Hugsanlega á ódýrari (á verðbilinu 500-1200 þús.).
Hef einnig áhuga á að taka krossara uppí (250cc fjórgengis) eða racer, 600-900cc.

Ásett verð:
Rúmlega 2.3 mill. sett á hann, en er tilbúinn að fara alveg slatta undir það ef hann selst fljótlega. Annars fer hann á sölu og þá verður ekki slegið jafn mikið af honum.

Aukahlutir og búnaður:
- Sérhönnuð sportfjöðrun
- Sérhannaðir RC körfustólar (úr rúskinni, leðri og fl. með saumuðu RC logo-i)
- Aksturstölva (2xEyðsla, keyrsla, ending bensíns, meðalhraði o.s.frv.)
- 6 airbags og mjög mikill annar öryggisbúnaður
- ABS
- ESP
- ASR
- EDB
- Tölvustýrð miðstöð með loftkælingu (A/C)
- Regnemi í framrúðu
- Sjálfvirkur ljósabúnaður (birtunemi sem kveikir á ljósunum þegar það dimmir t.d. í göngunum)
- Leðurgírhnúi (læt orginalinn fylgja sem er burstað stál)
- Leðurstýri
- Aðgerðastýri (útvarpi stjórnað með hendur á stýri)
- Sport innréttingu (Leður, rúskinn og carbon-fiber)
- Álpedalar
- Sport speglar (Carbon-fiber að hluta)
- Vindskeið (aka. Spoiler)
- Krómstútur á pústi (tvöfalt púst frá hljóðkút)
- 16" fallegar Peugeot felgur og góð heilsársdekk (205/45/16)

Myndir:
http://www.augnablik.is/showgallery.php?cat=500&si=Peugeot&page=1&sort=8&perpage=16&ppuser=98

Tækniupplýsingar frá umboðsaðila:
http://www.peugeot.is/car.asp?cat_id=758



Þetta er hörkukaggi og eina ástæðan fyrir sölu er námsferð til fjarlægra landa :( (annars mundi ég aldrei selja hann)

Ekta bíll fyrir þá sem eru ungir að aldri og vilja eitthvað svolítið kraftmeira en Yaris eða eitthvað meira en í 1.6L klassanum. Er líka alveg ótrúlega öruggur og með fáránlega miklum öryggisbúnaði þannig að þetta er ekta bíll fyrir áhættuhópinn (er það ekki 17-21 árs :P )

Koma svo!! Ekki vera hrædd við að henda á mig tilboði… thorarinnola@gmail.com