Ég er heví pirruð! Var sem sagt að keyra í dag. stoppaði á ljósum fyrir aftan polo og svo kom grænt lós og gellan fór ekki af stað þannig að ég gaf henni létt flaut til að reka aðeins á eftir henni. Neinei.. hún var þá geðveikt fúl og keyrði heví hægt á 10 km/klst og vinkona hennar var alltaf að líta aftur fyrir sig á mig. Ég tók náttúrulega fram úr henni, enda á hraðferð í vinnuna, og fór svo fyrir framan hana… neinei..byrjaði hún þá ekki að flauta á mig og vera með stæla! Hvað er að??? Var það mér að kenna að hún hafi verið sljó og ekki tekið eftir græna ljósinu??? Ég þoli ekki þegar það er flautað á mig útaf fokkin engu! Og ég hata konur undir stýri.. fyrir utan mig og mömmu mína.
——