Já, ég sá einhverja umræðu undir einhverjum bimma bíl um þetta og þá voru stöðugar fullyrðingar um að annað hvort að Benz ownaði BMW eða öfugt.

Persónulega er ég nýbyrjaður að fíla BMW, en fjölskylda mín hefur alltaf átt allavega 1 benz síðan…. 1992.
Því er búið að þrykkja því inn í hausinn á mér að benz séu bestir, samt ætla ég að fá mér Peugeot 406 Coupé, vegna þess að MÉR finnst þeir flottir.
MÉR finnst BMW yfirleitt flottir, og þá sérstaklega nýju týpurnar. M5 er alveg svakaleg og líka minni týpurnar.
MÉR finnst Benz líka flottir, en bara á allt annan hátt sem ég get hreinlega ekki útskýrt. Bara eitthvað sérstakt við þá sem heillar mann alltaf. Pabbi er einmitt að fara að skoða Benz 4Matic 300E 89' á eftir og vona ég að ég fái þann sem við eigum núna sem er Benz 200E 91' gott eintak og þó að þetta sé 200E þá er þrusukraftur í þessu kvekendi.

Æi, veit ekki hvert ég er að fara með þetta en langaði bara að tjá mig