Hæhæ,

Ég á “Mazda 626 gti '88” og mér finnst hún vera orðin svolítið öldruð að innan og mig langar svolítið að lappa upp á hana.

Þá er komið að vandamálinu sem ég spyr ykkur að,
hvar get ég fengið–
nýja innréttingu,
ný aftur- og jafnvel framljós,
ÁKLÆÐI Á GÓLF OG SÆTI,

hvar get ég keypt svoleiðis, því það er ekki málið að kaupa það í rúmfatalagernum.

Hvar er best að leita að svona dóti og öðrum aukahlutum í svona “gamlan” bíl.

Please ekki segja mér að kaupa mér nýjan bíl vegna þess að ég myndi frekar kaupa mér þennan bíl heldur en nýja hondu civic.

Þetta er bíll sem mig langar að eiga lengur, vegna þess að hann er mjög kraftmikill og góður/traustur bíll.

S.s. ég er að leita að :

Innréttingu
Fram og afturljósum
>>áklæði á gólf, loft og sæti<<

og öðrum hlutum sem að bæta útlit bílsins að innan.

ekki vera að svara einhverju bulli s.s. ég veit það ekki…
það er bara vísbending um einmannaleika ykkar….
sem að ég hef engan áhuga á…

þið sem hafið eitthvað í ykkar kolli ykkar um þetta, vinsamlegast hjálpið mér…

(væri æðislegt að fá url eða eitthvað þ.h.)