Samkvæmt orðrómi sem er að fara af stað í UK þá hefur Richard Burns ákveðið að ganga til liðs við Peugeot og mun hann keppa fyrir þeirra hönd á næsta ári í WRC.

Ekki góðar fréttir fyrir Subaru þar sem menn hafa verið að giska á að þarna sé nokkuð öruggt heimsmeistaraefni á ferðinni. Stóra spurningin er þá hver muni koma í staðinn fyrir Burns hjá Subaru og verður forvitnilegt að fylgjast með þeim vangaveltum á næstunni.