Ég er að spá í að fara að fá mér nýjan bíl og er mikið að spá í Almerum þar sem þeir eru djöfull ódýrir. Þess vegna var ég að spá hvort það væru einhverjir hérna sem gætu sagt mér eitthvað af þeim, þ.e.a.s. eyðslu, viðhaldskostnað og svona og bara hvernig bílar þeir eru almennt, hvort þeir séu skemmtilegir og þar fram eftir götunum.

Vantar það sama um PT Cruiser því ég er mjög skotinn í þeim bílum :Þ
_ _ _ _ _ _ _ _ _ _ _ _ _ _ _