Ég hef varla hundsvit á bílum en þegar ég var eitt sinn að spila Gran Turismo hafði ég keypt mér breytta Imprezu. Þegar ég skipti um gír heyrðist alltaf eitthvað “tijhs” hljóð sem ég hafði aldrei heyrt áður (a.m.k. ekki í fólksbíl). Ég er að velta því fyrir mér hvað það er sem framkallar þetta hljóð og hvað svoleiðis búnaður myndi kosta í ‘99-’00 árgerðina af Imprezu Turbo eins og fæst hér á landi.