Mynd: http://adsl8-218.simnet.is/siggeir/100_0756.JPG

Já gott fólk. Nú stendur ykkur einstakt tilboð til boða. Ein fallegasta Honda landsins er nú til sölu. Bíllinn er 2000 módel en sprautaður 2004. Síðan þá hefur hann aðeins verið þveginn með svampi (ekki kústum) og bónaður mjög reglulega og lítur því mjög vel út. Bíllinn er að vísu keyrður 112 þúsund kílómetra en það skrifast að miklu leyti á langkeyrslu og er bíllinn því í topp standi. Eins og sést eru undir honum glæsilegar felgur og einnig eru í bílnum mjög öflugar Pioneer (mp3/cd) græjur ásamt magnara. Allur pakkinn selst á milljón en ég er vel tilbúinn að ræða lægra verð ef felgur eða græjur fylgja ekki í kaupunum.

Ef einhver hefur áhuga á að kaupa felgurnar sér var ég að hugsa um 50 þúsund stykkið með dekkjum (sem eru lítið slitin). Þá erum við að tala um 30 þúsund af hverri felgu og 120 af öllum pakkanum. Einnig er ég opin fyrir því að selja græjurnar fyrir rétt verð.

Sverara púst var smíðað undir bílinn haustið 2004 (2 tommu opið í gegn) og einnig er búið að skipta um loftsíu í bílnum. Það er því nægur kraftur í honum ef menn á annað borð eru að sækjast eftir honum ;)

Ég verð til viðtals fram á laugardag en þá fer ég á sjó og verð fram í ágúst! Áhugasamir endilega hafið samband í síma 861-6454 eða bara hérna á huga, og við skulum ræða málin ;)

Ps. Skipti á ódýrari koma vel til greina (sérstaklega Nissan eða Toyota) og áhvílandi á bílnum er 430, afborgun 14 á mánuði.
_ _ _ _ _ _ _ _ _ _ _ _ _ _ _