Jæja það má segja að bíladagarnir hafi heppnast vel, þó að gamall maður hafi verið keyrður niður á Glerárgötu.
Margir flottir bílar mættu á svæðið sem ég hef ekki séð áður og þar á meðal svartur Skyline R33.
Gaman að einhver skuli loksins vera búinn að flytja einn inn en mikið agalegt fjós var þessi bíll, illa sprautaður og illa farinn…USS!!
Ef maður ætlar að kaupa svona bíl á annað borð og eyða í þetta formúgu fjár á maður að gera þetta almennilega og kaupa gott eintak.
En jæja, nóg um það.
Takk fyrir góða bíladaga