Ég heyrði frá frænda stráksins sem átti hvíta Sunnyinn, sem var að klessu í gær, að það hafi verið svartur Camaro sem hafi “svínað” fyrir strákin með þeim afleiðingum að hann hafi þurft að reyna að beyja frá honum til að koma í veg fyrir að bíllinn færi hreinlega í hliðina á honum og við það lent í mölinni og misst stjórn á bílnum eftir það. Ef ÞÚ hafir verið valdur að þessu slysi þá fynnst mér það minnsta sem þú getur gert er að heimsækja strákinn á spítalann og biðjast fyrirgefningar á þessu. Hann slasaðist töluvert og varð fyrir miklu tjóni að missa þennan bíl sem hann var búinn að leggja töluverða vinnu í. Og það þarf örugglega ekki að taka það fram að bílstjóri á hinum bílnum stakk af…